30 janúar 2007

Foreldraviðtöl

Þá er komið að foreldraviðtölunum. Ég hef gefið ykkur eftirfarandi tíma. Ef þeir henta ekki þá hafið endilega saman.

Fimmtudagurinn 1.febrúar
8:00 Lilja
8:40 Thelma Sif


Föstudagurinn 2.feb

8:00 Heiðrún Dóra
8:40 Þórdís

Mánudagur 5 feb
8:40 Heba
13:00 María Sól
13:25 Telma Sól

Þriðjudagur 6 feb
8:00 Egill

Miðvikudagur 7 feb
8:00 Emil
8:40 Júlía Kolbrún

Fimmtudagur 8 feb
8:40 – Lára
9:00 – Júlía Hrafns

26 janúar 2007

HÁSTÖKKVARI VIKUNNAR ER....


LILJA::::::::


Lilja hefur staðið sig frábærlega í náminu þessa vikuna. Hún hefur sýnt mikla einbeitingu og þolinmæði við alla vinnu. Auk þess er Lilja alltaf þæg og góð.

Hástökkvari vikunnar

Ég ætla nú á næstu vikum að taka upp hástökkvarahvatningu. Ég vel einn eða fleiri hástökkvara í hverri viku sem hafa skarað fram úr á einhvern hátt. Um getur verið að ræða sérstaklega góða ástundun - hegðun - vinskap - námsárangur og fleira. Hástökkvarinn fær með sér heim sérstakt spjald til foreldranna. Fyrsti hástökkvarinn er kynntur hér á síðunni í dag.

Í vikulok

Þá er þessari ágætu viku að ljúku. Krakkarnir hafa staðið í ströngu við úrlausnir á erfiðum verkefnum í stærðfræði og íslensku. Einhverjir hafa líka farið í lestrarkönnun. Markmiðið með þessum verkefnum er að taka stöðuna til að móta framhaldið. Námsmatið kynni ég ykkur í foreldraviðtölunum. Listinn yfir foreldraviðtölin verður hér á síðunni.

Við höfum rætt mikið um einelti og samskipti auk þess sem börnin hafa unnið ýmis verkefni um tillitsemi og stríðni. Oft verða einhverjir árekstrar en við höfum þá venju í hópnum að enda alltaf daginn á að gera upp daginn með eftirfarandi spurningum. Er einhver leiður yfir einhverju sem gerðist í dag? Er einhver sem er leiður yfir að hafa gert einhverjum eitthvað? Er einhver sem vill segja okkur frá einhverju góðverki dagsins. Börnin eru orðin mjög fær í þessu og fljót að afgreiða mál.

23 janúar 2007

Eineltisvika


Vikuna 22. - 26. janúar verður, í grunnskólum Garðabæjar, lögð sérstök áhersla á verkefni sem tengjast forvörnum gegn einelti. Markmiðið er að fjalla um jákvæð samskipti og vinna með viðhorf skólasamfélagsins. Nemendur vinna fjölbreytt verkefni tengd viðfangsefninu og verða þau kynnt sérstaklega í hverjum skóla. Nemendur fá heim með sér bækling um hvað einelti er, ráð til foreldra og viðbrögð skólanna við einelti. Það er samstarfshópur skólanna „Gegn einelti í Garðabæ“ sem lét hanna og gefa út bæklinginn og veggspjöld sem minna á ógnir eineltis. Hönnuður veggspjaldanna er foreldri í Garðabæ, Sveinbjörg Jónsdóttir. Foreldrafélag Sjálandsskóla hefur sent bréf til allra foreldra í tilefni af forvarnarvikunni.


Ég sendi ykkur heim með börnunum bæklinginn og sérstakt heimavinnublað ætlað ykkur forráðamönnum. Ég hvet ykkur eindregið til að kynna ykkur efni bæklingsins og bréfsins.

Komin inn á ný

Afsakið hvað lítið hefur komið á bloggið en ég lenti í tæknilegum vanda sem nú hefur verið leystur.

Skólastarfið hefur gengið vel og krakkarnir duglegir eins og áður. Ég er um þessar mundir að safna saman og vinna í námsmati fyrir foreldraviðtölin sem verða á næstunni. Tímana set ég inn á bloggið á næstu dögum.

10 janúar 2007

Venjulegir skóladagar og afmælisboð

Þá er skólastarfið komið í fullan gang eftir jólafríið. Börnin komu úthvíld og glöð eftir fríiið.Þau eru áfram námsfús og virkilega tilbúin í meira nám. Veðurþemað gengur vel en í þessari viku höfum við aðalega lagt áherslu á árstíðirnar - hvers vegna árstíðaskiptin verða. Við höfum útbúið líkan af sólarganginum og skoðað og teiknað út frá því. Þrátt fyrir ítrekaðar upprifjanir á því í hvaða röð árstíðirnar koma þá eru margir sem muna þetta ekki ennþá. Ég bendi ykkur á skemmtilega vefsíðu eftirfarandi tengli þar sem fjallað er um veður http://nams.is/snjor.

Á morgun og föstudag verð ég erlendis á kennslugagnasýningu. Linda kennaranemi kennir tímana mína en sú breyting verður einnig á kennslunni að Hrafnhildur Sigurðardóttir hefur nú tekið við kennslunni af Sesselju (farin í fæðingarorlof)sem kenndi 2.bekk 3 tíma á fimmtudögum. Hrafnhildi þekkja "gömlu" krakkarnir vel en hún sá um gæsluna í fyrra.

Nú á næstu vikum fara afmælin að hellast yfir okkur - mig langar að biðja alla foreldra að gæta þess að láta vita ef barnið kemst ekki í afmæli sem því hefur verið boðið í - mikilvægt fyrir afmælisbarnið sem upplifir jafnvel annars að krakkarnir vilj ekki koma (hefur gerst hér í skólanum að 15 krökkum var boðið í afmæli og aðeins 3 mættu og aðeins 2 aðrir létu vita) -
hugsið ykkur hvernig viðkomandi leið? Þetta er aðeins góðlátleg ábending sem mig langar að benda ykkur á. --- Hef reyndar enga trú að svona gerist í okkar bekk--- ..... Kveðja að sinni.

08 janúar 2007

Lítil systir fædd


í gær 7.janúar eignaðist Júlía Hrafnsdóttir litla systir. Við í skólanum sendum fjölskyldunni heillaóskir í tilefni af þessu. Júlía á örugglega eftir að standa sig vel í hlutverki stóru systur.

03 janúar 2007

Gleðilegt ár 2007


Heil og sæl öll og gleðilegt nýtt ár. Ég vona að allir hafi haft það gott og notið samvista við fólkið sitt.

Á föstudaginn hefst skólinn að nýju eftir þetta langþráða góða jólafrí. Skólahald verður þá samkvæmt stundaskrá. Mig langar að minna ykkur á að senda börnin vel klædd því við förum að sjálfsögðu í útikennslu.

Fyrsta þemað okkar á vorönninni verður um veðrið. Við ætlum að kynna okkur eftirfarandi þætti sem snúa að veðrinu.
Árstíðir - af hverju eru árstíðirnar
Ský - hvað eru ský og hvað gerist í þeim
Snjór - hvernig verður snjórinn til og hvers vegna fellur hann til jarðar
Vindur - hvað veldur vindi og hvað ræður því hvaðan hann kemur
Frost og hiti - hvað er það
Veðurorð - hvaða veðurorð þekkjum við
Hitamælar - lærum að lesa af hitamæli
Úrkomumælingar - hvernig og við búum okkur til okkar eigin mæli
Veðurfréttir og veðurtákn

Við ætlum að bjóða til okkar veðurfræðingi sem vonandi getur sagt okkur eitthvað meira um veðrið.

Mig langar að biðja ykkur foreldrana að fylgjast með veðurspánni með börnunum svona af og til þannig að þið tengjið heim það sem við erum að læra í skólanum.

Nýjar fréttir/upplýsingar á bloggið koma a.m.k einu sinni í viku - munið að kíkja reglulega á bloggið og komið endilega með athugasemdir á síðuna ef þið viljið deila einhverju með okkur hinum.