Loksins aftur blogg
Afsakið lélegt upplýsingastreymi nú að undanförnu en nú verður tekið á því.
Krakkarnir komu að vonum hress og útbelgd af súkkulaði eftir páskafríið.
Einhverjir eru reyndar enn í fríi. Næstu vikurnar verða í raun tvö þema í gangi. Annarsvegar er það tilraunaþema og hinsvegar þema um egg og unga en einmitt í dag eigum við von á 24 eggjum sem sett verða hérna í hitakassa. Krakkarnir í öðrum bekk munu síðan fylgjast náið með framvindun mála þangað til úr eggjunum verða komnir ungar. Af öryggisástæðum þá vil ég ítreka að ekkert barn fær að snerta á ungunum nema með plasthönskum. við munum vinna ýmis verkefni sem tengjast þessum lífsferli. Eitthvað af því verður sjálfsagt unnið heima.
Annars minni ég á lesturinn en oft vill draga úr lestrariðkun þegar fer að vora.
Einnig höldum við áfram að undirbúa góðgerðarmatinn sem við frestuðum fyrir páskana. Dagsetning verður auglýst síðar.

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home