Vikan hefur gengið vel hjá okkur. Krakkarnir eru jafn áhugasöm og endranær. Í vikunni höfum við lagt áherslu á vinnu í íslensku og stærðfræði. Ég hef verið að auka kröfurnar í ritun og legg nú aukna áherslu á að vanda skrift og frágang. Nokkuð ber á því að krakkarnir séu að rugla saman stóru og litlu stöfunum í ritun og er nú kominn tími til að vinna í því. Í vikunni lagði ég fyrir Læsi - lestrarskimun og kom það almennt vel út hjá hópnum. Við erum aðeins farin að vinna með stafsetningu og finnst krökkunum gaman að velta fyrir sér þeim fræðum. Ég geri þetta mest í leik en þau eru þó aðeins farin að skrifa eftir upplestri. Það er um að gera heima að lesa fyrir þau stök orð jafnvel úr lestrarbókinni og láta þau skrifa.
Einhverjir eru farnir að slá slöku við í heimalestrinum og er það ekki nógu gott - munum að æfingin skapar meistarann.
Í útikennslu í dag fórum við upp í Flataskóla og lékum þar á lóðinni. Á heimleiðinni löbbuðum við meðfram læknum og veltum fyrir okkur hraða vatnsins. Gerðum við tilraunir með nokkur prik sem við köstuðum út í lækinn og fylgdumst með. Margar tilgátur komu um hraðann og tímann sem það tæki að komast út í sjó við Sjálandsskóla.
Nú er spáð snjókomu og við höldum áfram í vonina um að komast í skíðaferð en krakkarnir spyrja mikið um það.
Ég minni á fyrirlestur foreldrafélagsins um Litbrigði fjölskyldna sem verður í Vídalínskirkju 7.mars klukkan 20:00. Alltaf gott að bæta við sig fróðleik!
Góða helgi.