Venjulegir skóladagar og afmælisboð
Þá er skólastarfið komið í fullan gang eftir jólafríið. Börnin komu úthvíld og glöð eftir fríiið.Þau eru áfram námsfús og virkilega tilbúin í meira nám. Veðurþemað gengur vel en í þessari viku höfum við aðalega lagt áherslu á árstíðirnar - hvers vegna árstíðaskiptin verða. Við höfum útbúið líkan af sólarganginum og skoðað og teiknað út frá því. Þrátt fyrir ítrekaðar upprifjanir á því í hvaða röð árstíðirnar koma þá eru margir sem muna þetta ekki ennþá. Ég bendi ykkur á skemmtilega vefsíðu eftirfarandi tengli þar sem fjallað er um veður http://nams.is/snjor.
Á morgun og föstudag verð ég erlendis á kennslugagnasýningu. Linda kennaranemi kennir tímana mína en sú breyting verður einnig á kennslunni að Hrafnhildur Sigurðardóttir hefur nú tekið við kennslunni af Sesselju (farin í fæðingarorlof)sem kenndi 2.bekk 3 tíma á fimmtudögum. Hrafnhildi þekkja "gömlu" krakkarnir vel en hún sá um gæsluna í fyrra.
Nú á næstu vikum fara afmælin að hellast yfir okkur - mig langar að biðja alla foreldra að gæta þess að láta vita ef barnið kemst ekki í afmæli sem því hefur verið boðið í - mikilvægt fyrir afmælisbarnið sem upplifir jafnvel annars að krakkarnir vilj ekki koma (hefur gerst hér í skólanum að 15 krökkum var boðið í afmæli og aðeins 3 mættu og aðeins 2 aðrir létu vita) -
hugsið ykkur hvernig viðkomandi leið? Þetta er aðeins góðlátleg ábending sem mig langar að benda ykkur á. --- Hef reyndar enga trú að svona gerist í okkar bekk--- ..... Kveðja að sinni.

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home