16 maí 2007

Yndislegir vordagar

Undanfarnir dagar hafa verið alveg himneskir hjá okkur í 2.bekk. Krakkarnir eru duglegir og sjálfstæðir sem hefur nú reyndar verið aðalsmerki þeirra í allan vetur. Námsmatið stendur yfir þessa dagana og í vikunni hafa allir verið lestrarprófaðir. Ég get ekki betur séð en að þetta sé að ganga vel hjá þeim - enda með afbrigðum vel gefin börn:)
Í gær fóru allir heim með skipulag vordaganna og bið ég ykkur um að passa upp á blaðið.

Sundið hófst í fyrradag og var síðan aftur í dag. Það gekk vel og Samúel sundkennari hafði orð á því að sumir ættu frekar heima í sundi með 4.bekk.

Vinaleikur starfsmanna Sjálandsskóla hefur haft mikil áhrif á krakkana sem nú vilja endilega líka hafa vinaleik. Við skelltum því á leynivinum í gær og mun sá leikur standa fram á föstudag. Markmiðið er að vera sérlega vinalegur við einhvern einn úr hópnum sem að maður dró. Ekki er um að ræða keyptar gjafir heldur heimagerð kort, hlýlegt viðmót og þ.h.

Góðgerðarhátíðin verður næsta miðvikudag 23.maí klukkan 19:00. Krakkarnir eru að útbúa auglýsingu sem kemur heim mjög fljótlega.
Friðrik pabbi Heiðrúnar Dóru og Jakob pabbi Maríu Sólar ætla að aðstoða börnin við að elda matinn og afla matarins. Bryndís og Októ foreldrar Egils ætla að útvega drykki. Mig langar að þakka þessu fólki kærlega fyrir stuðninginn. Vegna þessa getum við gefið allan ágóðann óskertan. Við þurfum að takmarka fjöldann í hófið og miðum við að með hverju barnir komi ekki fleiri en 3. Krakkarnir verða einnig með söngatriði. Eins og áður kom fram fáið þið frekari skilaboð um hófið og matseðilinn.

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home