Mikið líf í Sjálandsskóla
Heil og sæl. Nú er aldeilis mikið líf í skólanum en eins og þið eflaust hafið frétt þá skriðu 14 ungar úr eggjunum sem við fengum send. Krakkarnir gáfu þeim nöfn og hafa fylgst með vexti þeirra á hverjum degi. Mikið hefur verið skrifað af sögum og teiknaðar fjölmargar myndir verið teiknaðar af litlu ungakrílunum.
Almennt gengur skólalífið sinn vanagang. Krakkarnir eru dugleg og keppast við námið. Flestir eru nú farnir að skilja einfalda margföldun (1-4) og finnst krökkunum ótrúlega gaman að leysa margföldunardæmi.
Í gær var haldið upp á dag umhverfisins í Sjálandsskóla. Krakkarnir í 2.bekk týndu rusl í fjörunni - hreinsuðu vermireitinn okkar og byrjuðu að sá fræjum fyrir sumarið. Þau voru mjög áhugasöm við þá vinnu.
Á morgun stefnum við að því að fara í skógarferð í Heiðmörk. Við munum fara með rútu klukkan 10 og komum aftur í hádeginu. Mig langar að biðja alla um að koma sérstaklega vel klædda.
Ég er að stefna að góðgerðarhátíðinni um miðjan maí en krakkarnir eru farin að æfa sönglög fyrir gleðina. Enn á ég eftir að festa niður dagsetninguna en ég á eftir að hafa samráð við matreiðslumennina sem ætla að aðstoða okkur við matargerðina.
