Sjálandsblogg
Þetta er blogg 2.bekkjar í Sjálandsskóla Hér verðar birtar tilkynningar og efni sem tengist nemendahópnum og skólastarfinu. Ólöf S. Sigurðardóttir ritar bloggið en hún er kennari bekkjarins og aðstoðarskólastjóri í Sjálandsskóla.
31 október 2006
27 október 2006
Vikupósturinn
Þá er þessari rigningarblautu skólaviku lokið. Heimilisverkefnin eru í fullum gangi og krakkarnir sýna þeim mikinn áhuga. Guðfinna og Linda nemarnir okkar hafa borið mesta ábyrgð á kennslunni þessa vikuna. Þeim hefur gengið það vel. Í dag fóru krakkarnir ásamt 1.bekkingum að versla í Hagkaup. Unnið var í 4-5 manna hópum. Hóparnir versluðu hráefni í rétti sem fyrirhugað er að útbúa á þriðjudaginn. Hver hópur fékk 700 krónur til hráefniskaupa. Margt skemmtilegt bar á góma í ferðinni.
Einn hópurinn ætlar að baka brauðbollur. Þau voru með uppskrift þar sem stóð að þau þyrftu að nota 9 dl af hveiti. Þegar ég kom til þeirra í búðinni voru þau búin að setja í körfuna 9 - 2kg poka af hveiti. Þannig urðu 9 dl að 18 kílóum... Ég rifjaði þá upp með þeim hvað einn dl væri mikið og þá var hveitinu skilað snarlega. Annar hópur þurfti að nota matarolíu. Krakkarnir í hópnum tóku auðvitað flottustu og stærstu flöskuna. Hún kostaði 849 krónur. Þegar ég nefndi það við þau hvernig þau gætu borgað 849 krónur ef þau ættu bara 700??? Þá var auðvitað snúið við og fundin ódýrari olía. Semsagt mjög lærdómsrík verslunarferð.
Ekki meira að sinni. Góða helgi.
25 október 2006
24 október 2006
Heimilisvikan
Á morgun byrjar heimilisvikan hjá okkur í skólanum. Kennaranemarnir Guðfinna og Linda sjá að mestu um skipulagningu daganna. Heimaverkefnin verða með svipuðu sniði og í fyrra svo að foreldrar geta vænst góðra daga þar sem börnin skjótast út með ruslið - búa um rúmin - sópa gólfin og allt hitt....Á myndinni hérna við hliðina er Egill myndarlegur að baka pizzu fyrr í haust.
Íþróttadagur
Þá er íþróttadeginum lokið. Dagurinn var mjög skemmtilegur og krakkarnir okkar stóðu sig vel. Farið var á milli 8 stöðva þar sem í boði voru bæði hefðbundnar og óhefðbundnar íþróttir. 6 stöðvar voru úti og 2 inni. Ekki var laust við að einhverjum hafi verið kalt en ég vona að engum hafi orðið meint af.
Í morgunsöng sungum við ameríska hrekkjavökusöngva en Alþjóðaskólinn sér um val á lögum í morgunsöng þessa vikuna. Að sjálfsögðu var bara sungið á ensku.
23 október 2006
Heimsókn starfsmanna Sjálandsskóla
Í dag fóru starfsmenn skólans í heimsókn í Sunnulækjarskóla á Selfossi. Starfið í Sunnulækjarskóla er um margt líkt starfinu í Sjálandsskóla en þar er áhersla lögð á einstaklingsmiðað nám í opnu rými. Sunnlenskir kennarar kynntu okkur starfsemina og við gengum um og hittum börnin. Við Sjálendingarnir sögðum sunnlendingunum frá okkar skóla og við erum eftir sem áður afar stolt af skólanum okkar. Sáum að við (krakkarnir - starfsmennirnir og foreldrarnir í Sjálandsskóla) erum alveg FRÁBÆR......
Hér er tengill á heimasíðu skólans http://sunnulaekjarskoli.is
Kalt ...Ískalt
Minni á íþróttadaginn á morgun þriðjudaginn 24.10 og að allir eiga að vera mjög vel klæddir. Vettlingar og húfur - úlpur og hlífðarbuxur -
20 október 2006
Frí hjá krökkunum
Mánudaginn 23.október verður skipulagsdagur kennara í Sjálandsskóla. Engin kennsla verður þennan dag en þeir sem hafa sótt um gæslu hafa örugga vist þar.
Þriðjudaginn 24.október verður íþróttadagur í skólanum. Þá ætlum við að stunda íþróttir allan daginn. Boðið verður upp á allskonar óhefðbundnar íþróttir og keppt í ýmsum þrautum. Það verða bara allir að muna að koma vel klæddir þennan dag - við verðum úti allan daginn!!!!!
Foreldraviðtöl
Þá eru að hefjast foreldraviðtöl bekkjarins. Eins og áður verða þau dreifð á dagana og skólahald verður með eðlilegum hætti þá daga. Mikilvægt er að forráðamenn gefi sér tíma til að setjast niður með börnunum áður en komið er í viðtalið og ræða við það hvernig gengur þannig að allir séu undirbúnir.
Tímarnir eru þessir:
Miðvikudagurinn 25.október
Kl: 8:45 Heba Sólveig
Fimmtudagurinn 26.október
Kl : 8:00 Egill
Kl : 8:40 Lilja
Kl : 9:00 Lára Sif
KL : 9:20 María Sól
Föstudagurinn 27. október
Klukkan: 8:00 Emil Örn
Klukkan: 8:40 Þórdís
Miðvikudagurinn 1.nóvember
Klukkan: 15:00 Thelma Sif
Fimmtudagurinn 2.nóvember
Klukkan: 8:00 Heiðrún Dóra
Klukkan: 8:40 Júlía Hrafnsd
Klukkan: 9:00 Telma Sól
Klukkan: 9:20 Júlía Kolbrún
Ef þessir tímar henta ekki þá endilega sendið mér línu olofs@sjalandsskoli.is og við finnum nýjan tíma.
Skólastarf vikunnar
Þetta hefur nú verið frekar skrítin vika hjá okkur. Á mánudaginn mættu til okkar kennaranemarnir Guðfinna og Linda. Þær áttu að vera í áheyrn þessa viku en hafa nú verið meira en það og okkur sýnist að þær verði mjög góðir kennarar.
Á þriðjudaginn var æfð rýming úr skólanum. Við þurfum að kunna að bregðast við ef eldur verður laus í skólanum. Við í hópnum höfðum æft þetta mjög vel í síðustu viku. Skemmst er frá að segja að um leið og viðvörunarbjöllurnar fóru í gang þá vissu allir hvað þeir áttu að gera. Það kom ekkert fát á hópinn og við vorum komin út á íþróttavöll á innan við 5 mínútum. Það var frábær árangur og 1. og 2.bekkur voru fljótust að komast út. Við fengum að sjálfsögðu hrós fyrir það.
Í hádeginu þennan sama dag komu í skólann gestir frá Marel. Fyrirtækið gaf skólanum 12 víð- og smásjár. Þetta er frábær gjöf og allir krakkarnir fengu að kíkja í sjárnar. Það voru allskonar sýni sem við höfðum safnað. Í lok dagsins voru smásjárnar settar inn í skáp en víðsjárnar verða frammi á gangi hjá fiskabúrinu. Nemendur í 7.bekk ætla að setja ný sýni í víðsjárnar á hverjum degi. Smásjárnar notum við bara þegar kennararnir eru með okkur.
Í vikunni lagði ég fyrir alla könnun á líðan krakkanna í bekknum og það hvernig okkur líkar í hinum ýmsu námsgreinum. Niðurstöðurnar skoðum við saman í foreldraviðtölunum.
Fimmtudagur og föstudagur voru með öðru sviði en venjulega. Krakkarnir í 4.bekk fóru í samræmt próf og þurftu að nota allt heimasvæðið ein. Við fengum þess vegna að fara í aukatíma í listum og í tölvum. Guðfinna og Linda fóru einar með krakkana í útikennsluna í dag þar sem ég var að sitja yfir í samræmda prófinu.
Krakkarnir eru mjög upptekin af samræmda prófinu sem eldri nemendurnir eru að taka í dag. Einhverjir eru strax farnir að hafa áhyggjur af þessu. Ég botna ekkert í þessari umræðu þar sem hún hefur ekki verið uppi á borðum hjá okkur í bekknum. Ég útskýrði það hins vegar fyrir krökkunum að prófið væri fyrst og fremst fyrir okkur í skólanum til að kanna það hvað við þyrftum að kenna betur. Það sem gengi illa í prófinu þyrfti bara að kenna betur. Krakkarnir voru ánægð með þessa útskýringu.
Góða helgi.



