Í vikulok
Þá er þessari ágætu viku að ljúku. Krakkarnir hafa staðið í ströngu við úrlausnir á erfiðum verkefnum í stærðfræði og íslensku. Einhverjir hafa líka farið í lestrarkönnun. Markmiðið með þessum verkefnum er að taka stöðuna til að móta framhaldið. Námsmatið kynni ég ykkur í foreldraviðtölunum. Listinn yfir foreldraviðtölin verður hér á síðunni.
Við höfum rætt mikið um einelti og samskipti auk þess sem börnin hafa unnið ýmis verkefni um tillitsemi og stríðni. Oft verða einhverjir árekstrar en við höfum þá venju í hópnum að enda alltaf daginn á að gera upp daginn með eftirfarandi spurningum. Er einhver leiður yfir einhverju sem gerðist í dag? Er einhver sem er leiður yfir að hafa gert einhverjum eitthvað? Er einhver sem vill segja okkur frá einhverju góðverki dagsins. Börnin eru orðin mjög fær í þessu og fljót að afgreiða mál.

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home