Sjálandsblogg
Þetta er blogg 2.bekkjar í Sjálandsskóla Hér verðar birtar tilkynningar og efni sem tengist nemendahópnum og skólastarfinu. Ólöf S. Sigurðardóttir ritar bloggið en hún er kennari bekkjarins og aðstoðarskólastjóri í Sjálandsskóla.
24 maí 2007
21 maí 2007
Skipulag vordaga
Sund verður eftirtalda daga: 14.,16.,18.,21.,23.,25.,30.maí og 1.og5.júní
Góðgerðarhátíð 23.maí. Gestir mæta klukkan 19:00. Nemendur mæta klukkan 17:00
Íþróttadagur 24.maí. Koma vel klædd á hjóli og með nesti.
Útikennsla 31.maí. Farið í Nauthólsvík. Koma vel klædd og með nesti.
Fjallganga 4.maí. - verður nánar auglýst síðar.
Innilega 4.-5. maí. - allir gista í skólanum.
Skólaslit 7.maí. klukkan 12:00
16 maí 2007
Yndislegir vordagar
Undanfarnir dagar hafa verið alveg himneskir hjá okkur í 2.bekk. Krakkarnir eru duglegir og sjálfstæðir sem hefur nú reyndar verið aðalsmerki þeirra í allan vetur. Námsmatið stendur yfir þessa dagana og í vikunni hafa allir verið lestrarprófaðir. Ég get ekki betur séð en að þetta sé að ganga vel hjá þeim - enda með afbrigðum vel gefin börn:)
Í gær fóru allir heim með skipulag vordaganna og bið ég ykkur um að passa upp á blaðið.
Sundið hófst í fyrradag og var síðan aftur í dag. Það gekk vel og Samúel sundkennari hafði orð á því að sumir ættu frekar heima í sundi með 4.bekk.
Vinaleikur starfsmanna Sjálandsskóla hefur haft mikil áhrif á krakkana sem nú vilja endilega líka hafa vinaleik. Við skelltum því á leynivinum í gær og mun sá leikur standa fram á föstudag. Markmiðið er að vera sérlega vinalegur við einhvern einn úr hópnum sem að maður dró. Ekki er um að ræða keyptar gjafir heldur heimagerð kort, hlýlegt viðmót og þ.h.
Góðgerðarhátíðin verður næsta miðvikudag 23.maí klukkan 19:00. Krakkarnir eru að útbúa auglýsingu sem kemur heim mjög fljótlega.
Friðrik pabbi Heiðrúnar Dóru og Jakob pabbi Maríu Sólar ætla að aðstoða börnin við að elda matinn og afla matarins. Bryndís og Októ foreldrar Egils ætla að útvega drykki. Mig langar að þakka þessu fólki kærlega fyrir stuðninginn. Vegna þessa getum við gefið allan ágóðann óskertan. Við þurfum að takmarka fjöldann í hófið og miðum við að með hverju barnir komi ekki fleiri en 3. Krakkarnir verða einnig með söngatriði. Eins og áður kom fram fáið þið frekari skilaboð um hófið og matseðilinn.
06 maí 2007
Betri tíð og blóm í haga
Hjólaferðin á föstudaginn gekk heldur betur vel. Við hjóluðum alla leið inn í Kópavog og út á Kársnesið þar sem Kópavogshöfn er. Krakkarnir voru alveg svakalega dugleg að hjóla og telst okkur til að þetta séu um 8-9 kílómetrar sem við hjóluðum Þetta sýnir okkur hversu öflug þau eru. Endilega látið krakkana hjóla og hreyfa sig en úthald og áræðni styður krakkana mikið í náminu
Ungarnir eru nú orðnir stærðar kjúklingar og hafa flutt í lítið hús sem enn er haft inni í skóla. Þegar fer að hlýna þá verður húsið flutt út þar sem fuglarnir verða fram á sumar. Þá er stefnt að því að senda þá á Úlfljótsvatn þar sem skátar eru með sumarbúðir. Næsta vetur verðum við svo vonandi komin með varanlegan hænsnakofa á lóðina. Börnin hafa sinnt´ungunum mjög vel og náð góðum skilningi á lífsferlinum. Þau vita nú þegar að í hverjum hænsnahóp getur aðeins verið einn hani og eru þau nú orðin mjög áhyggjufull um afdrif hinna hananna í hópnu. Enn er þó ekki alveg ljóst hverjir eru hanar svo spennan eykst með hverjum deginum.
Nú allra næstu daga set ég hér á bloggið dagsetningu fyrir góðgerðarhátíðina en stefnt er á vikuna 21.-25.maí.
Nú erum við að rifja upp helstu aðferðirnar sem við höfum lært í vetur í stærðfræðinni og í vikunni verður væntanlega lagt fyrir lestrarpróf.
03 maí 2007
Hjólatúr á morgun föstudaginn 4.maí
Útikennsla föstudaginn 4.maí
Á morgun föstudag stefni ég að því að fara í hjólaferð með bekkinn. Ferðin mun taka allan morgunin og því er mjög mikilvægt að allir komi vel klæddir. Gott er líka að taka með sér aðeins ríflegra nesti (kannski brauð og safa). Munið bara að setja nestið í lítinn bakpoka.
Allir eiga að vera með hjálma.
Við munum aðeins hjóla á hjólreiðastígum og förum ekkert út í umferðina. Með í ferðinni verður skólaliði.
Kær kveðja Ólöf
01 maí 2007
Notum skrokkinn - göngum eða hjólum í skólann
Þá er komið að hinu árleg átaki skólans þar sem markmiðið er að koma í skólann annað hvort gangandi eða hjólandi. Átakið stendur fram til 22.maí. Langflestir starfsmenn taka þátt í keppninni hjólað í vinnuna og er mikill hugur í fólki. Síðasta vor voru nemendur skólans mjög áhugasamir um þetta átak. Ekki þarf að fjölyrða um hversu mikilvægt er fyrir alla að halda sér í góðu formi og er þetta góð leið til að stunda daglega líkamsrækt. Krakkarnir eru yfirleitt svo viljug og kröftug að það er um að gera að venja þau strax á unga aldri við holla lífshætti. Við erum líka heilmikið í umhverfisfræðslu og veltum fyrir okkur hvernig við getum mengað minna. Færri bílferðir skapa okkur öllum betra andrúmsloft og það er um að gera að ala börnin upp með þessa vitneskju að leiðarljósi.
Það er að sjálfsögðu engin skylda að koma ekki í bíl en við skráum þó samviskusamlega niður hvernig við komum í skólann.
Það er auðvitað alveg í höndum foreldra hvort þeir treysta börnum sínum að koma hjólandi enda koma krakkarnir mis-öruggar leiðir. Einhverjir foreldrar tóku þátt í þessu með okkur í fyrra og hjóluðu með börnum sínum og enn aðrir brugðu á það ráð að keyra barnið og hjólið á öruggan stað þannig að barnið gat hjólað síðustu metrana í skólann og þannig verið með.
Eitt að lokum:
ÞAÐ ERU LANDSLÖG AÐ BÖRN UNDIR 16 ÁRA ALDRI EIGA AÐ VERA MEÐ HJÁLM OG MUNDUM VIÐ AÐ SJÁLFSÖGÐU FYLGJA ÞEIRRI REGLU Í HVÍVETNA.

