24 nóvember 2006

Prinsessan á bauninni í vikulok


Um leið og ég óska ykkur góðrar helgar þá langar mig að minna ykkur á könnunina sem fór heim með öllum börnunum í gær.


Í dag byrjuðum við að æfa leikrit fyrir jólaskemmtun. Leikritið sem flytja á er Prinsessan á bauninni. Skipað var í hlutverk og fór það fram með þeim hætti að allir fengu möguleika á að óska eftir hlutverki og ef margir óskuðu eftir því sama þá var ugla sat á kvisti aðferðin notuð. Ég held að allir hafi farið ósárir frá hlutverkaskipaninni. Allir fá þó að vera á sviðinu í leikbúningum. Einhverjir fóru heim í dag með textablöð til að æfa sig á. Einhverjar stúlkur ætla að koma með prinsessu og hirðmeyjarkjóla í skólann til að æfa og leika í. Okkur vantar einnig föt á kóng, prins og varðmann ef þið eigið eitthvað slíkt þá væri vel þegið að fá það lánað. Tréhest prinsinn vantar einnig.

Heimavinna

Í dag föstudag fá krakkarnir í fyrsta sinn í vetur heimavinnu. Um er að ræða stærðfræðiblöð með nokkrum dæmum. Börnunum stendur til boða að velja úr þremur verkefnum sem eru þyngdarskipt frá 1 -3. 1 er þannig léttast og 3. þyngst. Reynsla mín frá síðasta ári er sú að þegar í boði var val þá völdu þau yfirleitt það sama og ég hefði látið þau fá. Mig langar að biðja ykkur um að setja ekki út á valið þeirra - það sem þau koma með heim er það sem þau treysta sér í þá stundina. Þetta er leið til að styrkja sjálfstæði þeirra og aukna ábyrgð.
Mikilvægt er að foreldrar séu með barninu þegar að það leysir verkefnið þannig að þið sjáið hvernig barninu gengur. Ég veit það nú nokkuð vel en átta mig á að þið vitið það kannski ekki alveg.
Gleymið ekki liðnum í verkefninu þar sem börnin eiga að búa sjálf til dæmi og skemmtið ykkur með þeim við að galdra fram frumleg og skemmtileg reiknisdæmi. Þeim dæmum ætla ég að safna saman og setja í lítið hefti sem þau fá.

Nýtið þetta tækifæri til að eiga góða stund með barninu og munið umfram allt að heimavinnan á ekki að vera leiðinleg kvöð heldur tækifæri til að sýna ykkur hvað þau geta.

Verkefninu á að skila í næstu viku - enginn ákveðinn dagur - bara þegar ykkur hentar.

21 nóvember 2006

íþróttir og föt - snjór og föt - kuldi og föt


Minni á íþróttaföt á mánudögum og þriðjudögum.

Minni á auka sokka í töskurnar.

Minni á vettlinga á kalda putta.

Minni á hlífðarbuxur eða snjóbuxur.

Minni á viðeigandi skófatnað - stígvél í bleytutíð og kuldaskó í snjó.

Minni á hauga af óskilafatnaði í óskilaskápnum á efri hæðinni.

Minni á að það er ömurlegt að vera bara 7 ára og skítkalt...í frosti...

Lestrarátak


Núna stendur yfir lestrarátak í skólanum. Allir keppast við að lesa sem mest og fylgjumst við með risastóru súluriti sem hækkar og hækkar. Eitthvað hefur borið á því að einhverjir hafa ekki lesið heima og vil ég biðja foreldra að kippa því í liðinn nú þegar - annar bekkur ætlar nú aldeilis að leggja sitt af mörkum. Einnig langar mig að biðja foreldra þeirra barna sem eru komin svo vel á veg í lestrinum að þau sækja sér lestrarbækur á bókasafnið að láta mig vita ef ykkur líst ekki á valið. Ég reyni að hafa áhrif á hvað valið er en næ ekki alltaf að halda utan um þetta. Það er líka í góðu lagi að þau lesi bækur sem þau eiga heima eða fá á öðrum bókasöfnum. Aðalmálið er bara að lesa og lesa - æfingin skapar meistarann..

Fréttir af flottu krökkunum í 2.bekk Sjálandsskóla


Skólastarfið gengur sinn vanagang. Nú eru að verða liðnir þrír mánuðir af þessu skólaári og krökkunum hefur heldur betur farið fram. Þessa þrjá mánuði hafa þau staðið sig með stakri prýði í öllum helstu þáttum skólastarfsins. Samkomulagið innan hópsins er almennt mjög gott og velti ég því oft fyrir mér að allir þeir sem tala um agaleysi í íslenskum skólum ættu að kíkja til okkar í heimsókn og sjá hvað hlutirnir geta gengið vel.

Í dag bjuggu allir til ættartrén sín. Þetta tókst vel en margir áttu fullt í fangi með að muna hvað allar þessar ömmur og afar hétu. Þið megið gjarnan spyrja krakkana út í þetta.


Við hömumst í stærðfræðinni með auknum krafti núna og í lok vikunnar sendi ég heimavinnu til að leyfa ykkur að fylgjast með því sem við erum að gera.


Á degi íslenskrar tungu fóru hóparnir um allan bæ eins og áður hefur verið lýst. Skemmst er frá að segja að þetta gekk frábærlega og við vorum svakalega stolt af krökkunum. Við fengum allsstaðar góðar mótttökur og ekki var laust við að einhverjir áheyrendur hreinlega táruðust.


15 nóvember 2006

Íslenska er okkar mál


Á morgun 16.nóvember verður haldinn hátíðlegur dagur íslenskrar tungu. Við í Sjálandsskóla gleðjumst yfir því. Í fyrramálið verður hérna leikskýning á vegum Stopp leikhópsins. Að henni lokinni fer allur skólinn á flakk. Nemendunum hefur verið skipt niður í 5 aldursblandaða hópa. Hóparnir fara í fyrirtæki og skóla með örlitla söngdagskrá. Farið verður í FG - Vistor - Garðaskóla - Holtsbúð - Marel og Ikea. Hver hópur fer á einn stað. Dagskráin var æfð í dag og stóðu börnin sig mjög vel.
Mikilvægt er að muna eftir því að klæða sig vel - frostið bítur!!!

Margt í gangi

Á myndinni er Thelma Sif að pakka sinni gjöf.


Ég ætla nú að afsaka það hvað lítið hefur komið á síðuna í vikunni - en nú verður bætt fyrir það.


Jólapakkarnir okkar eru nú væntanlega lagðir af stað til Úkraínu en sökum veðurs þá treystum við okkur ekki í strætó síðasta föstudag. Húsvörðurinn okkar hann Sigurður keyrði því pakkana á viðtökustað. Það er óhætt að segja að í þessa pakka var lögð mikil einlægni og virðing. Hérna má sjá myndir frá pakkavinnunni á heimasíðu skólans.
Nýja þemað okkar " Það er aðeins einn ég" er farið af stað. Gera mitt besta blaðið og námsmatið kemur heim á morgun í möppunni. Þegar þið hafið skoðað það þá sendið þið möppuna aftur í skólann.

07 nóvember 2006

Fundurinn í kvöld

Minni á fundinn með Stefáni Karli í kvöld klukkan 20:00.
Hvet ykkur öll til að koma. Krakkarnir höfðu mjög gaman af fyrirlestrinum í morgun.

06 nóvember 2006

Jól í skókassa

Eins og þið öll vitið þá eru krakkarnir í 2.bekk alveg einstaklega góð og gjafmild.
Í tilefni af verkefninu um jól í skókassa sem KFUM og KFUK standa fyrir langar mig að hvetja börnin til að taka þátt. Í verkefninu felst að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að setja nokkra hluti, eins og ritföng, vettlinga, sokka, hreinlætisvörur, leikföng og sælgæti í skókassa. Kassanum er síðan pakkað inn í jólapappír og útdeilt til þurfandi barna víðsvegar um heiminn - ég held að í ár fari pakkarnir til Úkraínu. Þannig viljum við mæta þörfum fólks sem eru fórnarlömb stríðs, fátæktar, náttúruhamfara og sjúkdóma með það að markmiði að sýna kærleika. Ég mun útvega börnunum skókassa og gjafapappír en fer þess á leit við ykkur ágætu foreldrar að þið styrkið börnin með því að leyfa þeim að kaupa örfáa hluti til að setja í kassann ( best er ef börnin geta eytt pínu af sínum eigin pening). Á heimasíðu söfnunarinnarhttp://www.skokassar.net/?page_id=2 er nánar útlistað hvað má fara í kassann og hvað ekki. Verkefni snýst ekki um að gefa dýra stóra pakka heldur aðeins lítinn glaðning. Stefnt er að því að krakkarnir komi með gjarnirnar á fimmtudaginn í skólann og við pökkum þeim inn þá. Á föstudaginn förum við síðan með gjafirnar í höfuðstöðvar KFUM og KFUK. Ég veiti ykkur fúslega frekari upplýsingar ef eitthvað er óljóst. Vonandi vilja allir vera með. Gerum öll góðverk fyrir jólinn:

Stefáni Karli varpað á vegg

Á morgun mun Stefán Karl Stefánsson leikari flytja fyrirlestur um einelti. Stefán flytur fyrirlesturinn í Los Angeles en hann verður sýndur í gegn um tölvu í skólanum. Í fyrramálið mun Stefán tala við börnin og annað kvöld klukkan 20:00 verður fyrirlestur fyrir okkur fullorðna fólkið. Fyrirlestrar Stefáns um þetta efni hafa verið geysivinsælir en hann hefur talað víða. Foreldrafélagið ætlar að bjóða upp á kaffi og kleinur. Aðgangseyrir inn á kvöldfyrirlesturinn er 1000 krónur og mun hluti gjaldsins renna til Regnbogabarna.
Ég hvet ykkur öll til að koma á þennan fyrirlestur - okkur veitir ekkert af að velta þessu leiðinlega fyrirbæri aðeins meira fyrir okkur.

Vikan framundan

Þá er enn byrjuð ný skólavika. Nýjar væntingar og ný verkefni.
Síðasta vika gekk vel. Heimilisvikunni lauk með mikilli veislu og á föstudaginn var farið í Álftanesskóla í heimsókn. Krökkunum fannst gaman að kynnast nýjum skóla og nýjum krökkum. Ástæða þess að Álftanesskóli var heimsóttur var sú að hún Guðfinna kennaraneminn okkar kennir þar. Guðfinna hefur nú lokið sinni æfingakennslu en Linda verður áfram í tvær vikur enn. Reyndar missti ég af ferðinni þar sem ég krækti mér í gubbupest eins og svo margir í bekknum en óvenju mikið hefur verið um pestir síðustu daga.

Á miðvikudaginn byrjar nýtt þema "Það er aðeins til einn ég". Viðfangsefninu er ætlað að vinna gegn fordómum og efla sjálfsstyrk. "Gera mitt besta" blaðið kemur heim í möppunni á miðvikudaginn.

03 nóvember 2006

Heimalestur - ekki gleyma að lesa

Nokkuð hefur borið á því að krakkarnir lesi ekki nógu reglulega heima. Eins og ég hef áður talað um þá er afar mikilvægt að börnin lesi sem oftast og reglulega. Í þessu eins og öðru er það æfingin sem skapar meistarann. Þrátt fyrir að margir séu komnir vel á veg þá þurfa þeir ekkert síður að halda lestrinum við. Það hægir mjög á framförum ef æfingar eru ekki stundaðar af kappi. Hérna á síðunni koma tenglar um ýmislegt sem tengist lestri og lestrarnámi sem ég hvet áhugasama að kynna sér.