Sjálandsblogg
Þetta er blogg 2.bekkjar í Sjálandsskóla Hér verðar birtar tilkynningar og efni sem tengist nemendahópnum og skólastarfinu. Ólöf S. Sigurðardóttir ritar bloggið en hún er kennari bekkjarins og aðstoðarskólastjóri í Sjálandsskóla.
18 desember 2006
14 desember 2006
Piparkökukvöldið er í kvöld

Í kvöld fimmtudaginn 14. desember verður áður auglýst jólastund hjá 2. ÓS í Sjálandsskóla.
Stundin hefst kl. 17.30 – 18.30.
Dagskráin er ekki löng, við byrjum á því að mála piparkökur og síðan sína nemendur jólaleikrit sem þeir eru að æfa fyrir litlu jólin.
Við sköffum málningu til að skreyta með en þið komið með ykkar eigin kökur. Í fyrra máluðum við stór piparkökuhjörtu og það er hægt að kaupa þau í flest öllum bakaríum.
Systkini eru hjartanlega velkomin og hver fjölskylda kemur með veitingar fyrir sig, t.d. kakó á brúsa, smákökur og mandarínur til að narta í.
Með jólakveðju, foreldrafulltrúar.
Stundin hefst kl. 17.30 – 18.30.
Dagskráin er ekki löng, við byrjum á því að mála piparkökur og síðan sína nemendur jólaleikrit sem þeir eru að æfa fyrir litlu jólin.
Við sköffum málningu til að skreyta með en þið komið með ykkar eigin kökur. Í fyrra máluðum við stór piparkökuhjörtu og það er hægt að kaupa þau í flest öllum bakaríum.
Systkini eru hjartanlega velkomin og hver fjölskylda kemur með veitingar fyrir sig, t.d. kakó á brúsa, smákökur og mandarínur til að narta í.
Með jólakveðju, foreldrafulltrúar.
07 desember 2006
Næstu dagar

Á morgun föstudag verð ég í fríi og hún Linda kennaraneminn okkar kennir börnunum.
Ég minni alla á leiksýninguna á laugardaginn. Eftir leikritið verður kaffi í skólanum að frumkvæði foreldrafélagsins - Ég hvet alla til að koma í kaffið bæði þá sem fara á leikritið og líka hina.
Næsta þriðjudag ætlar 2.bekkur að syngja við athöfn í skólanum (á skólatíma) þegar undirritaður verður formlegur samningur við alþjóðaskólann. Við ætlum að syngja Jingel bell á ensku og alþjóðaskólinn ætlar að syngja sama lag á íslensku.
Á fimmtudaginn verður piparkökukvöld hjá 2.bekk. Foreldrafulltrúarnir sjá um að auglýsa þetta frekar.
Enn minni ég á lesturinn en við megum ekki gleyma að láta börnin lesa þó svo að jólaannir séu miklar.
Þemadagar búnir

Þá er jólaþemadögunum okkar lokið. Börnin höfðu mjög gaman af verkefnunum og margir útbjuggu fallegt jólaskraut, kerti og góðgæti sem skreyta mun skólann fram að jólum. Krakkarnir kunnu því vel að vinna í aldursblönduðum hópum.
Á myndinn má sjá Júlíu Kolbrúnu og Maríu í bakstri með krökkum úr Alþjóðaskólanum.
03 desember 2006
Aðventa gengur í garð
Þá er þessi haustönn farin að styttast í annan endann. Jólin nálgast óðfluga og ekki er laust við að börnin séu byrjuð að "spennast" upp. Nýtt þema byrjar hjá okkur í næstu viku og verður tengt jólunum. Á þriðjudag og miðvikudag n.k. verðum við með stöðvavinnu í skólanum þar sem öllum nemendum verður blandað í hópa. Viðfangsefnið er jólaundirbúningur af ýmsu tagi. Börnin fengu í síðustu viku að velja sér viðfagnsefni. Í boði er m.a. smákökugerð, konfektgerð, laufabrauð, kertagerð, ljóskerjaföndur, jólakort, gluggaskreytingar. Börnin kunnu vel að meta það að fá að velja og vönduðu sig mikið við valið. Á aðventunni mun ég eftir bestu getu reyna að leggja áherslu á notalegt andrúmsloft og rólegheit. Að sjálfsögðu höldum við þó áfram með námsefnið en reynum að sveipa það jólalegum blæ.
Heimavinnan í stærðfræði gekk vel og flestir virtust hafa gaman af. Einhverjir foreldrar voru að velta fyrir sér þeim aðferðum sem börnin nota við að leggja saman tugi og einhverjir kenndu þeim uppsetningaraðferðirnar sem þeir lærðu sjálfir. Það er í góðu lagi en aðferðin sem að ég kenni eru aðrar. Ég sendi ykkur fljótlega eða set inn á vefinn smá hugleiðingu um hvaða aðferðir við samlagningu og frádrátt börnunum eru kenndar í flestum skólum í dag. Ég ítreka þó að það er um að gera að kynna börnunum sem flestar aðferðir - þau velja síðan hvað hentar þeim best.
Einhverjir eru farnir að slaka á í heimalestrinum og það er ekki gott. Nú höfum við sett upp veggspjald þar sem krakkarnir færa inn hversu mikið þau lesa daglega. Munið bara að heimalesturinn þarf ekki að taka meira en 15 mínútur á dag og ætti að vera sannkölluð gæðastund. Reynsla mín er sú að um miðjan vetur í 2.bekk fer oft að hægja á framförum í lestri enda er það einmitt þá sem fer að slakna á heimalestrinum. Við skulum hjálpast að við að láta það ekki gerast.
Æfingar á jólaleikritinu Prinsessan á bauninni eru í fullum gangi. Það má eiginlega segja það að það sé það skemmtilegasta sem krakkarnir gera þessa dagana. Leikritið verður sýnt á jólaskemmtununni þann 20.des en einnig er fyrirhugað að sýna fjölskyldunum afraksturinn. Bekkjarfulltrúarnir eru að ég held að spá í 14.des fyrir piparkökumálningu svipað og í fyrra og þá sýnum við leikritið.
Þá er það ekki meira að sinni. Njótið helgarinnar og látið ekki stressið grípa ykkur.
