Vikan
Síðasta vika gekk ljómandi vel. Áfram hef ég lagt mikla áherslu á vinnu í móðurmáli. Við höfum líka verið að ljúka ýmsum ókláruðum verkefnum úr síðustu þemum. Eins og flest ykkar vita var opið hús í Sjálandsskóla á fimmtudaginn var. Opna húsið var hugsað fyrir nýja nemendur og forráðamenn þeirra. Nokkrir nemendur úr hverjum umsjónarhópi voru í skólanum þetta síðdegi og svöruðu spurningum og sýndu skólann. Krakkarnir voru mjög ábyrg vegna þessa opna húss og gerðu það vel. Í tilefni af þessu tókum við líka allt í gegn - fórum yfir bakkana - hillur - skápa og skúffur. Á föstudaginn fórum við síðan á listasýningu á Kjarvalsstöðum. Sýningin heitir bernskan í verkum Kjarvals. Fengum við mjög góða leiðsögn og þið ættuð bara að vita hversu frábærir áheyrendur krakkarnir ykkar eru. Þau voru semsagt einstaklega kurteis og kunnu sig alveg 100%. Ég var alveg að springa af stolti.....
Í vikunni (mið - fim - fös) verða listadagar hjá okkur í skólanum. Börnin hafa nú þegar valið sig inn í fjölbreytt verkefni. Nánar um það síðar.
Áfram er stefnt að skíðaferð. Nú er nógur snjór í Bláfjöllum en veðrið hefur ekki verið okkur hliðhollt. Við viljum frekar bíða eftir ákjósanlegum veðurskilyrðum heldur en fara í tæpu veðri. Um leið og eitthvað verður ákveðið þá fáið þið póst.

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home