Aðventa gengur í garð
Þá er þessi haustönn farin að styttast í annan endann. Jólin nálgast óðfluga og ekki er laust við að börnin séu byrjuð að "spennast" upp. Nýtt þema byrjar hjá okkur í næstu viku og verður tengt jólunum. Á þriðjudag og miðvikudag n.k. verðum við með stöðvavinnu í skólanum þar sem öllum nemendum verður blandað í hópa. Viðfangsefnið er jólaundirbúningur af ýmsu tagi. Börnin fengu í síðustu viku að velja sér viðfagnsefni. Í boði er m.a. smákökugerð, konfektgerð, laufabrauð, kertagerð, ljóskerjaföndur, jólakort, gluggaskreytingar. Börnin kunnu vel að meta það að fá að velja og vönduðu sig mikið við valið. Á aðventunni mun ég eftir bestu getu reyna að leggja áherslu á notalegt andrúmsloft og rólegheit. Að sjálfsögðu höldum við þó áfram með námsefnið en reynum að sveipa það jólalegum blæ.
Heimavinnan í stærðfræði gekk vel og flestir virtust hafa gaman af. Einhverjir foreldrar voru að velta fyrir sér þeim aðferðum sem börnin nota við að leggja saman tugi og einhverjir kenndu þeim uppsetningaraðferðirnar sem þeir lærðu sjálfir. Það er í góðu lagi en aðferðin sem að ég kenni eru aðrar. Ég sendi ykkur fljótlega eða set inn á vefinn smá hugleiðingu um hvaða aðferðir við samlagningu og frádrátt börnunum eru kenndar í flestum skólum í dag. Ég ítreka þó að það er um að gera að kynna börnunum sem flestar aðferðir - þau velja síðan hvað hentar þeim best.
Einhverjir eru farnir að slaka á í heimalestrinum og það er ekki gott. Nú höfum við sett upp veggspjald þar sem krakkarnir færa inn hversu mikið þau lesa daglega. Munið bara að heimalesturinn þarf ekki að taka meira en 15 mínútur á dag og ætti að vera sannkölluð gæðastund. Reynsla mín er sú að um miðjan vetur í 2.bekk fer oft að hægja á framförum í lestri enda er það einmitt þá sem fer að slakna á heimalestrinum. Við skulum hjálpast að við að láta það ekki gerast.
Æfingar á jólaleikritinu Prinsessan á bauninni eru í fullum gangi. Það má eiginlega segja það að það sé það skemmtilegasta sem krakkarnir gera þessa dagana. Leikritið verður sýnt á jólaskemmtununni þann 20.des en einnig er fyrirhugað að sýna fjölskyldunum afraksturinn. Bekkjarfulltrúarnir eru að ég held að spá í 14.des fyrir piparkökumálningu svipað og í fyrra og þá sýnum við leikritið.
Þá er það ekki meira að sinni. Njótið helgarinnar og látið ekki stressið grípa ykkur.

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home