Skólastarf vikunnar
Þetta hefur nú verið frekar skrítin vika hjá okkur. Á mánudaginn mættu til okkar kennaranemarnir Guðfinna og Linda. Þær áttu að vera í áheyrn þessa viku en hafa nú verið meira en það og okkur sýnist að þær verði mjög góðir kennarar.
Á þriðjudaginn var æfð rýming úr skólanum. Við þurfum að kunna að bregðast við ef eldur verður laus í skólanum. Við í hópnum höfðum æft þetta mjög vel í síðustu viku. Skemmst er frá að segja að um leið og viðvörunarbjöllurnar fóru í gang þá vissu allir hvað þeir áttu að gera. Það kom ekkert fát á hópinn og við vorum komin út á íþróttavöll á innan við 5 mínútum. Það var frábær árangur og 1. og 2.bekkur voru fljótust að komast út. Við fengum að sjálfsögðu hrós fyrir það.
Í hádeginu þennan sama dag komu í skólann gestir frá Marel. Fyrirtækið gaf skólanum 12 víð- og smásjár. Þetta er frábær gjöf og allir krakkarnir fengu að kíkja í sjárnar. Það voru allskonar sýni sem við höfðum safnað. Í lok dagsins voru smásjárnar settar inn í skáp en víðsjárnar verða frammi á gangi hjá fiskabúrinu. Nemendur í 7.bekk ætla að setja ný sýni í víðsjárnar á hverjum degi. Smásjárnar notum við bara þegar kennararnir eru með okkur.
Í vikunni lagði ég fyrir alla könnun á líðan krakkanna í bekknum og það hvernig okkur líkar í hinum ýmsu námsgreinum. Niðurstöðurnar skoðum við saman í foreldraviðtölunum.
Fimmtudagur og föstudagur voru með öðru sviði en venjulega. Krakkarnir í 4.bekk fóru í samræmt próf og þurftu að nota allt heimasvæðið ein. Við fengum þess vegna að fara í aukatíma í listum og í tölvum. Guðfinna og Linda fóru einar með krakkana í útikennsluna í dag þar sem ég var að sitja yfir í samræmda prófinu.
Krakkarnir eru mjög upptekin af samræmda prófinu sem eldri nemendurnir eru að taka í dag. Einhverjir eru strax farnir að hafa áhyggjur af þessu. Ég botna ekkert í þessari umræðu þar sem hún hefur ekki verið uppi á borðum hjá okkur í bekknum. Ég útskýrði það hins vegar fyrir krökkunum að prófið væri fyrst og fremst fyrir okkur í skólanum til að kanna það hvað við þyrftum að kenna betur. Það sem gengi illa í prófinu þyrfti bara að kenna betur. Krakkarnir voru ánægð með þessa útskýringu.
Góða helgi.

0 Athugasemdir:
Skrifa ummæli
<< Home