20 febrúar 2007

Að loknu vetrarfríi

Heil og sæl. Þá er þessu indæla vetrarfríi lokið og börnin komu mjög glöð í skólann aftur. Það var greinilegt að þau höfðu gott af fríinu. Margir höfðu lagt land undir fót og höfðu frá mörgu að segja. Nú næstu tvær vikurnar ætla ég að leggja áherslu á íslenskuna. Ætlum við að vinna aðeins með þætti eins og orðflokkana - samheiti og andheiti - einfaldar stafsetningaræfingar og margvíslega ritun. Nú undanfarnar vikur hafa krakkarnir verið mjög áhugasöm í allskonar bókagerð. Hafa þau framleitt sögur og bækur af fullum krafti. Einhverjir hafa verið að semja heima og sýnt okkur í skólanum. Þetta er mjög skemmtileg vinna og styrkið endilega börnin í þessu ef þau sýna þessu áhuga heima.
Venju samkvæmt vinnum við áfram í öðrum námsgreinum.

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home